Fjarbúðin

Wednesday, October 25, 2006

Um daginn bloggaði ég langt blogg en það hvarf og þá varð ég voðaleið!

Fyrir alla þá sem eru að velta því fyrir sér þá er ég ekki ólétt!!! Vissulega erum við gift og auk þess hef ég fitnað en ég hefði ekki trúað að það gætu svona margir spurt á svona stuttum tíma hvort ég væri ólétt!! Maður verður bara eins og kúkur og reynir að snúa þessu upp í grín. Ég segi stundum að ég sé bara feit eða spyr viðkomandi hvort hann sé óléttur óháð aldri og kyni. Ég er eiginlega orðin vön þessu og var búin að sætta mig við það þangað til ég var í gær spurð:
Var það strákur eða stelpa? (ó varstu ekki ólétt?)

Ég skal síðan bara blogga það ef ég verð einhvern tímann ólétt!

2 Comments:

  • At 2:53 PM, Blogger Hildigunnur said…

    En asnalegt fólk! Þegar ég hitti þig síðast (fyrir löngu síðan) þá sagðir þú við mig: "nei, ég er ekki ófrísk!". Ég var varla búin að segja halló við þig og var engan veginn að velta því fyrir mér! Fyndin stelpa ;)

     
  • At 11:58 AM, Blogger Naglinn said…

    Þetta er óþolandi spurning, þ. e. þegar maður er ekki óléttur. Eitthvað ömurlegt býr alltaf að baki svona spurningu, því viðkomandi hlýtur að finnast maður a) hafa fitnað, b) líti þreytulega út eða c) sé oft rauður á nefinu.
    Ekkert af þessu bætir sjálfstraustið neitt sérstaklega, nema síður sé!

     

Post a Comment

<< Home