Fjarbúðin

Friday, February 02, 2007


Nótt á VR2 2

[Varúð: Nám + þreytusvimi]

Vúhú! Mér tókst að leysa burðarbitaverkefnið núna rétt fyrir kl. 3. Húrra fyrir verkfræðingunum sem settu upp síðuna http://www.soft4structures.com (markhópur=Eyrún)!

Röltið út í 10-11 hefur greinilega borið ávöxt. Nú hef ég engu að kvíða þótt skýrsluskil séu á mánudaginn. Á samt enn eftir heimadæmi o.fl. áður en ég fer að sofa.

Enn eru nokkrar hræður í húsinu þegar ég fer að pakka niður. Það er kveikt ljós á bókasafni meistaranema. Þar eru augljóslega einhverjir sem ætla að ná því að útskrifast í febrúar.

1 Comments:

  • At 9:14 PM, Anonymous Anonymous said…

    Mér finnst eins og þetta blogg hafi verið bloggað bara fyrir mig :) og stuðlað að enn meira nördaskap. Mér þykir þú duglegur að vera að læra svona mikið. Sjálf á ég að skila burðarþolsverkefni á hádegi á morgun, er ekki byrjuð. Þetta hlýtur að reddast :)

     

Post a Comment

<< Home