Fjarbúðin

Sunday, November 19, 2006

Jólin mín komu í nótt!

Ég fór í mjög skemmtilegt ammæli og fór svo að dansa í snjónum!! Eða fór út í snjóinn til að dansa á skemmtistöðunum öllu heldur!

Af því að jólin mín eru komin fór ég í Ikea í dag og er að hlusta á jólalög!
Mér finnst að allir megi ráða hvenær jólin þeirra komi ;o)

Hér er krækja á gott blogg um þyngd og tölvuþyngd!
Mér finnst að ef maður ætlar að gera krækjur á e-ð (linka) þá verði það að vera í öðrum lit. Það eru samt ekki allir sammála mér. Hvað finnst ykkur?

Snjókorn falla....
...og ég hlakka til jólanna!